Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 218/2022-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 218/2022

Fimmtudaginn 7. júlí 2022

 

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 25. apríl 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. febrúar 2022, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi þáði greiðslur atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun á tímabilinu mars til júní 2020 samhliða minnkuðu starfshlutfalli hjá B. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. febrúar 2022, var kæranda tilkynnt að henni bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir júní 2020, að fjárhæð 67.781 kr., á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 25. apríl 2022. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 27. apríl 2022, var óskað eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 14. júní 2022, og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 16. júní 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa tekið eftir skuld að fjárhæð 67.781 kr. þegar hún hafi fyrir tilviljun opnað netbankann sinn. Hún hafi verið búsett og starfandi á Íslandi frá ágúst 2018 til júní 2020. Þá hafi kærandi flutt aftur til síns heimalands og skráð sig þar. Árið 2021 hafi kærandi gert allt upp, greitt skatta og önnur gjöld sem hafi þurft að greiða. Í kjölfarið hafi kærandi hætt að hugsa um Ísland og því hafi umrædd skuld komið verulega á óvart, sérstaklega þar sem hún hafi ekki komið til Íslands í næstum tvö ár og ekki þegið neinar bætur á árinu 2021.

Kærandi óski eftir því að ákvörðun Vinnumálastofnunar verði endurskoðuð og að það verði haft í huga að hún hafi ekki haft nein tengsl við Ísland í tvö ár. Þá hafi kærandi ekki sjálf ákvarðað eða reiknað út þá upphæð sem hún hafi fengið greidda frá Vinnumálastofnun árið 2020 á tímum heimsfaraldurs. Ef ekkert sé hægt að gera óski kærandi þess að greiðslunni verði dreift mánaðarlega svo að hún hafi tök á að geta greitt skuldina í lok árs 2022. Launin í hennar heimalandi séu töluvert lægri en á Íslandi og því hafi kærandi ekki tök á að greiða skuldina í einu lagi.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi þann 27. mars 2020 sótt um atvinnuleysisbætur samhliða minnkuðu starfshlutfalli vegna tímabundins samdráttar í rekstri vinnuveitanda í samræmi við bráðabirgðaákvæði í lögum um atvinnuleysistryggingar. Heimild bráðabirgðaákvæðisins hafi falið í sér að laun sem greidd hafi verið samhliða minnkuðu starfshlutfalli hafi komið til skerðingar á atvinnuleysisbótum samkvæmt sérgreindum reglum og greiðslur frá Vinnumálastofnun hafi numið tekjutengdum atvinnuleysisbótum í réttu hlutfalli við hið skerta starfshlutfall. Almennt hafi ákvæðið gengið undir nafninu hlutabótaleið í daglegri umfjöllun um úrræðið.

Kærandi hafi þegið 75% hlutabætur á móti hinu skerta starfshlutfalli í upphafi umsóknar. Samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta hafi kærandi verið skráð í 25% starf og fengið launagreiðslur frá fyrirtækinu B. Atvinnurekandi hafi staðfest upplýsingar varðandi minnkað starfshlutfall í gegnum „Mínar síður“ og skráð áætlaðar tekjur kæranda. Þann 29. júní 2020 hafi atvinnurekandi breytt skráningu á tekjuáætlun og starfshlutfalli kæranda á „Mínum síðum“. Breyting hafi verið gerð á starfshlutfalli kæranda í júní 2020. Breytingarnar hafi verið gerðar svo seint í mánuðinum að Vinnumálastofnun hafði þegar tekið út greiðsluskrá og atvinnuleysisbætur verið greiddar út á grundvelli fyrri upplýsinga um tekjur og starfshlutfall kæranda.

Munur á fyrirliggjandi upplýsingum og síðbúnum breytingum á áætluðum tekjum hafi myndað skuld hjá stofnuninni, samtals að fjárhæð 67.781 kr. Leiðréttingar á greiðslum til kæranda hafi verið gerðar þann 29. júlí 2020. Sama dag hafi kæranda verið send tilkynning þar sem upplýst hafi verið um ofgreiðslu.

Kæranda hafi verið sent innheimtubréf þann 10. [febrúar] 2022 vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta á árinu 2020. Skorað hafi verið á kæranda að greiða skuld sína innan 30 daga. Í bréfinu hafi verið tekið fram að ef skuld væri ekki að fullu greidd innan 30 daga yrði málið sent Innheimtustöðinni á Blönduósi til frekari innheimtu. Engin viðbrögð hafi borist frá kæranda og því hafi krafa verið send Innheimtumiðstöðinni á Blönduósi til frekari innheimtu þann 28. mars 2022.

Þann 19. apríl 2022 hafi kærandi haft samband við Vinnumálastofnun til að óska upplýsinga um mál sitt. Erindi kæranda hafi verið svarað þann 25. apríl 2022. Í kjölfarið hafi kærandi óskað eftir greiðsludreifingu og henni hafi verið bent á að hafa samband við Innheimtumiðstöðina á Blönduósi.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Með lögum nr. 23/2020, um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um Ábyrgðarsjóð launa, hafi verið gerðar tímabundnar breytingar til að mæta aðstæðum á vinnumarkaði. Tilgangur með breytingum hafi verið sá að hvetja fyrirtæki til að halda ráðningarsambandi við starfsfólk sitt þar til aðstæður á vinnumarkaði myndu skýrast. Fyrirtækjum í tímabundnum rekstrarvanda hafi verið gefinn kostur á að lækka starfshlutfall starfsmanna sinna tímabundið fremur en að grípa til uppsagna. Með úrræðinu hafi verið leitast við að draga úr auknu atvinnuleysi vegna tímabundinna þrenginga á vinnumarkaði og koma til móts við aðstæður launamanna sem hafi þurft að taka á sig kjaraskerðingu í formi minnkaðs starfshlutfalls.

Í 2. og 3. mgr. bráðabirgðaákvæðis XIII þágildandi laga um atvinnuleysistryggingar hafi verið fjallað um minnkað starfshlutfall. Þar segi að greiðslur atvinnuleysisbóta samkvæmt 1. mgr. skuli nema hámarki tekjutengdra atvinnuleysisbóta í réttu hlutfalli við hið skerta starfshlutfall.

Skuld í máli kæranda sé tilkomin vegna þess að greiðslur hlutabóta í júní 2020 hafi ekki tekið mið af raunverulegu starfshlutfalli kæranda. Kærandi hafi verið skráð í 25% starfshlutfall en atvinnurekandi kæranda hafi gert breytingar nálægt mánaðamótum þegar greiðsluskrá hafði þegar verið send til greiðslu. Eftir breytingu hafi kærandi verið skráð í 50% starfshlutfall í mánuðinum.

Upprunalega hafi kærandi fengið greiddar hlutabætur á móti 25% starfshlutfalli í júní 2020. Hámark tekjutengdra atvinnuleysisbóta hafi á þessum tíma verið 456.404 kr. og séu 75% af þeirri upphæð 342.303 kr. sem hafi myndað stofn af greiðslu til kæranda í júní. Þar sem kærandi hafi verið í 50% starfi í júní hafi hún að hámarki átt rétt á 50% hlutabóta í stað 75%. Leiðrétting á júnímánuði hafi verið gerð þann 3. ágúst 2022. Leiðréttingin hafi verið framkvæmd á þann hátt að kæranda hafi verið gert að endurgreiða 25% af hámarki tekjutengdra atvinnuleysisbóta, eða 114.101. kr. Að teknu tilliti til breytinga á tekjum, inneignar sem hafi myndast við leiðréttingu svo og leiðréttingu á persónuafslætti og launatengdum gjöldum hafi skuld kæranda numið 67.781. kr.

Krafa Vinnumálastofnunar um endurgreiðslu kæranda á ofgreiddum atvinnuleysisbótum sé byggð á 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, en ákvæðið hljóði svo:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Samkvæmt framangreindu ákvæði sé Vinnumálastofnun skylt að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbóta og innheimta þær atvinnuleysisbætur sem ofgreiddar hafi verið. Í athugasemdum með 39. gr. frumvarps þess sem varð að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum þeim tilvikum þegar atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð. Vinnumálastofnun telji því ekki efni til að fella niður kröfu stofnunarinnar um endurgreiðslu á ofgreiddum atvinnuleysisbótum. Kæranda hafi ekki verið gert að greiða álag á skuld, enda sé skuldamyndun tilkomin vegna atvika sem kæranda verði ekki kennt um.

Það sé niðurstaða Vinnumálastofnunar að kæranda beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, að upphæð 67.781 kr.

IV. Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. febrúar 2022, um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir júní 2020, að fjárhæð 67.781 kr., vegna tekna sem kærandi aflaði þann mánuð en hún þáði atvinnuleysisbætur samhliða minnkuðu starfshlutfalli.

Í 1. mgr. XVI. ákvæðis til bráðabirgða í lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sem var í gildi í júní 2020, kemur fram að þegar atvinnuleysisbætur séu greiddar samhliða minnkuðu starfshlutfalli samkvæmt 17. gr. vegna tímabundins samdráttar í starfsemi vinnuveitanda skuli föst laun frá vinnuveitanda fyrir hið minnkaða starfshlutfall ekki koma til skerðingar á fjárhæð atvinnuleysisbóta samkvæmt 36. gr., enda hafi fyrra starfshlutfall lækkað um 20 prósentustig hið minnsta og launamaður haldið að lágmarki 25% starfshlutfalli. Þá segir í 5. mgr. ákvæðisins: 

„Greiðslur atvinnuleysisbóta skv. 1. mgr. skulu nema hámarki tekjutengdra atvinnuleysisbóta í réttu hlutfalli við hið skerta starfshlutfall. Laun frá vinnuveitanda og greiðslur atvinnuleysisbóta samanlagt geta þó aldrei numið hærri fjárhæð en 700.000 kr. á mánuði og skulu ekki nema hærri fjárhæð en 90% af meðaltali heildarlauna launamanns. Til að finna út meðaltal heildarlauna skal miða við þriggja mánaða tímabil áður en launamaður missti starf sitt að hluta. Til launa teljast hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald, nr. 113/1990.“

Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi greidd laun frá B samhliða minnkuðu starfshlutfalli frá mars 2020 til og með júní 2020. Þann 29. júní 2020 gerði atvinnurekandi kæranda breytingar á tekjuáætlun og starfshlutfalli kæranda. Breytingarnar voru gerðar það nálægt mánaðamótum að Vinnumálastofnun greiddi kæranda atvinnuleysisbætur á grundvelli fyrri upplýsinga um tekjur og starfshlutfall kæranda. Kærandi fékk því greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hún átti rétt á þann mánuð. Skuld kæranda er þannig tilkomin vegna þess að greiðslur hlutabóta í júní 2020 tóku ekki mið af raunverulegu starfshlutfalli kæranda. Samkvæmt fyrirliggjandi samskiptasögu var kæranda tilkynnt um fjárhæð skuldar þann 29. júlí 2020.

Í 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum, beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laganna er heimilt að skuldajafna ofgreiddum atvinnuleysisbótum á móti síðar tilkomnum atvinnuleysisbótum sama einstaklings en þó aldrei hærri fjárhæð en sem nemur 25% af síðarnefndu atvinnuleysisbótum í hverjum mánuði. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars svo í skýringum við ákvæðið:

„Efni ákvæðisins felur í sér möguleika á leiðréttingu á fjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta eftir að þær hafa verið keyrðar saman við álagningu skattyfirvalda að því er varðar það viðmiðunartímabil sem lagt er til að verði haft til hliðsjónar við útreikningana. Er því gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun hafi heimildir til að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbótanna til samræmis við álagningu skattyfirvalda. Er gert ráð fyrir að leiðréttingin geti átt sér stað nokkru eftir að bæturnar hafa verið greiddar eða þegar endanleg álagning skattyfirvalda liggur fyrir. Á sama hátt er jafnframt gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun geti leiðrétt fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta. Slíkt getur átt við þegar upplýsingar þær er liggja grunnatvinnuleysisbótum til grundvallar hafa verið rangar eða hinn tryggði ekki tilkynnt til Vinnumálastofnunar um að hann sé ekki lengur í atvinnuleit.

Þannig er gert ráð fyrir að hinn tryggði endurgreiði Atvinnuleysistryggingasjóði þær fjárhæðir sem ofgreiddar eru í þeim tilvikum er hann fékk hærri greiðslur úr sjóðnum en honum bar. Á þetta við um öll tilvik sem kunna að valda því að hinn tryggði hafi fengið ofgreitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði.“

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Þar sem tekjuáætlun kæranda var ekki í samræmi við rauntekjur hennar fékk hún greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hún átti rétt á í júnímánuði 2020. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Í máli þessu hefur ekkert álag verið lagt á skuld kæranda og því er ekki ágreiningur um það atriði. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. febrúar 2022, í máli A, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum